Hin gömlu kynni | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Hin gömlu kynni

Fyrsta ljóðlína:Hin gömlu kynni gleymast ei
Höfundur:Robert Burns
Viðm.ártal:≈ 1925
1.
Hin gömlu kynni gleymast ei
enn glóir vín á skál.
Hin gömlu kynni gleymast ei
né gömul tryggðarmál.
Ó, góða, góða, gamla tíð
með gull í mund.
Nú fyllum báðir bikarinn
og blessum liðna stund.
2.
Við leiddumst fyrr um laut og hól,
er lóan söng í mó.
En draumar svifu, söngur hvarf
úr Silfrastaðar skóg.
3.
Við óðum saman straum og streng
og stóðumst bylgjufall.
En seinna hafrót mæðu og meins
á millum okkar svall.
4.
Þótt sortnað hafi sól og lund,
ég syng und laufgum hlyn
og rétti mund um hafið hálft
og heilsa gömlum vin.