Vatnsdalur | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra
Handan við háfjöllin bláu,
handan við mela og börð,
þar sem að ljóðandi lindir
líða um ræktaða jörð.

Þar er hinn þrúðhelgi dalur,
þessa lands fegursta sveit.
Ingimundur hinn aldni
augum hann fyrstur leit.

Göfugmennið hinn gamli
var göfgari hverjum hal.
Enn ríkir Ingimundar
andi í þessum dal.