Jónas Vermundsson | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jónas Vermundsson

Fyrsta ljóðlína:Það var ekki talað um vetur né byl
bls.98
Viðm.ártal:≈ 1950

Skýringar

Jónas Vermundsson 1905-1979 starfaði sem veghefilsstjóri hjá Vegagerðinni á Blönduósi.
Það var ekki talað um vetur né byl,
er vöktu þeir Jónas um nótt.
Ef fastur í snjó var á brautinni bíll
það brást ei hann vaknaði fljótt.
Og viljinn að greiða úr vanda hvers manns
það var honum hvatning í raun.
Ef einum fannst ófært, fannst honum það hægt
og hlýtur nú eftir því laun!

Laun þess er vandaði verkin sín öll
sem vissi hann réttast og best.
En þeir sem að höfðu á starfinu stjórn
og staðfestu dyggðina mest,
þeir eru ekki að virða neitt verkin þess manns.
– Að vita það tel ég mér skylt. –
Um 37 ára þjónustu hans
er þagað – en smámenni hyllt.