Kvöldvers - meinlaust og gagnslaust | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Kvöldvers - meinlaust og gagnslaust

Fyrsta ljóðlína:Nú stilli ég strengina lágt
Viðm.ártal:≈ 0
Nú stilli ég strengina lágt
og stefni hvílu til
og bið að hafa ei hátt
ég hvíldar njóta vil.
Ef rétt er sagan sögð
ég sestur er í helgan stein
og geri ekki neinum gagn
og geri ekki neinum mein.