Í fatahengi Hótel Blönduóss hangir Palestínusjal | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Í fatahengi Hótel Blönduóss hangir Palestínusjal

Fyrsta ljóðlína:Í fatahengi Hótel Blönduóss
Heimild:Kvæðasafn.
Viðm.ártal:≈ 1975
Í fatahengi Hótel Blönduóss
hangir Palestínusjal.
Í mildum faðmi Blönduósbæjar
bíður þess sem koma skal.

Á það nokkurt hlutverk hérna?
Hvernig getur þetta skeð?
Það á ekki þátt í neinu.
Það er ekki lengur með.

Það lifir hérna hengt á snaga
hvorki sigur eða tap.
Það vottar eitt og yfirgefið
einhvers gleymsku og drykkjuskap.