Andlátsorð Sigurðar Breiðfjörð | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Andlátsorð Sigurðar Breiðfjörð

Fyrsta ljóðlína:Ég horfi á blóm í hlíð sem grær
Heimild:Kvistir.
bls.44
Viðm.ártal:≈ 0
Tímasetning:1900
1.
Ég horfi á blóm í hlíð sem grær
mót himni teygir sig;
Við blöð þess leikur léttur blær
þar lít ég sjálfan mig.
2.
Ég horfi´ á blað, sem féll að fold
og fékk ei varið sig
en liggur troðið lágt í mold
þar lít eg sjálfan mig.
3.
Ég horfi´ á fugl sem flýgur hátt
með fjöri teygir sig
á móti sól í suðurátt
þar sjálfan lít ég mig.
4.
Á fjaðralausan horfi´ eg ham
í hel sem þreytti sig
og leirflag nár að legstað nam:
Þar lít ég sjálfan mig.