Eldsumbrot í Vatnajökli | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Eldsumbrot í Vatnajökli

Fyrsta ljóðlína:Undan hjarnsins ofurþunga
bls.3. tbl. 64. árg. 2014 bls.136
Viðm.ártal:≈ 2000
Undan hjarnsins ofurþunga
er að bresta skorpan hörð.
Svartri ösku ælir sprunga
yfir landsins græna svörð.
Æstum huga Bárðarbunga
bræðir ís og hristir jörð.

Rignir vikri, vindar æða
vötnin belja engu lík.
Út um grundir allar flæða
ekki samt í Reykjavík.
Yfir steypist stefnuræða
úr stráknum þar í pólitík.