Jón Árnason 1819-2019 | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Jón Árnason 1819-2019

Fyrsta ljóðlína:Svo hratt líður tíminn að tilbrigði mörg
Viðm.ártal:≈ 0
1.
Svo hratt líður tíminn að tilbrigði mörg
þau týnast í ferlinu hröðu.
En þegar við reynum að bjóða þar björg
við bætum þar nokkuð úr stöðu.
Og því skal sú barátta af hollustu háð
sem hirðir um menningarkynni.
Af seiglu skal halda í sérhvern þann þráð
er Sögunni heldur í minni.
2.
Við komum hér saman í minningu um mann
sem miklu fékk bjargað frá gleymsku.
En samtíðin lagði ekki lof sitt á hann
og leit kannski á verk hans sem heimsku.
Menn skildu ekki, að hann var að skila þar heim
þeim skínandi kynslóða arfi
sem vaxtað gat lífið og þroskann í þeim
með þjóðlegu menningarstarfi.
3.
Það stefndi þar áður í eyðingartjón
og andleysu krunkandi hrafna.
En gott var að eiga þá garp eins og Jón
sem gekk í það verkefni að safna.
Og efni hvert fengið og skrifað og skráð
þar skilaði íslenskum kjarna.
Hann greip þar með festu hvern þjóðsagnaþráð
í þjónustu framtíðarbarna.
4.
Og vegna þess fagnandi heiðrum við hann
og hrífumst af verkunum snjöllu.
Því aldirnar tvær hafa magnað þann mann
að menningargildi í öllu.
Þar orðstírinn lifir við afrekin kunn
því allir fá stuðning frá Jóni.
Hann svalar enn þyrstum við þjóðsagnabrunn
og þroskar menn áfram á Fróni.



Athugagreinar

Ljóð var flutt fyrsta sinni í veislu Landsbókavarðar í Fellsborg að kvöldi afmælisdags 17. ágúst 2019. Ingi Heiðmar las ljóðið.