Páll Jónsson (Staðarhóls-Páll) | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Páll Jónsson (Staðarhóls-Páll) d. 1598

EIN LAUSAVÍSA
Páll var sýslumaður og bjó um tíma á Staðarhóli í Dölum og var kenndur við þann bæ og tíðum nefndur Staðarhóls-Páll. Lengst af bjó hann þó á Reykhólum í Reykhólasveit. Páll nam í Munkaþverárklaustri og einnig utanlands. Hann var talinn einna mestur lagamaður á sinni tíð og þótti heldur harðdrægur í viðskiptum. Hann kvæntist Helgu Aradóttur, sonar Jóns biskups Arasonar, og unnust þau mjög í fyrstu en ástir þeirra kólnuðu brátt og versnaði allur vinskapur. Kvað þá Páll heldur ósnoturlega um hana en hafði áður ort til hennar eldheit ástarljóð. Þau slitu svo að lokum samvistir. Páll var frumlegt skáld og í kveðskap hans gætir talsvert ljóðrænnar náttúrurómantíkur sem fremur minnir á miðevrópskan skáldskap þess tíma en íslenskan.

Páll Jónsson (Staðarhóls-Páll) höfundur

Lausavísa
Ýtar sigla austur um sjó