Magnús Einarsson á Tjörn | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Magnús Einarsson á Tjörn 1734–1794

FIMM LAUSAVÍSUR
Magnús var fæddur í Nesi í Eyjafirði 13. júlí 1734. Foreldrar hans voru Einar Jónsson, síðast spítalahaldari að Möðrufelli, og fyrri kona hans, Guðrún Magnúsdóttir frá Saurbæ í Hörgárdal. Magnús „lærði undir skóla hjá Þórarni sýslumanni Jónssyni á Grund og naut styrks hans“, segir Páll Eggert Ólason. Magnús varð stúdent úr Hólaskóla 1759. Hann vígðist að Stærra Árskógi 1763, síðan að Upsum í Svarfaðardal 1765 og að Tjörn í Svarfaðardal árið 1769. Tjörn hélt hann til æviloka, 29. nóvember 1794, og er jafnan kenndur við þann bæ. Eftir hann er mikið efni til, mest óprentað. (Heimild: Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár III, bls. 417)

Magnús Einarsson á Tjörn höfundur

Lausavísur
Gjöfum reifði margan mann
Gulli brenndu og glæstum sein
Hræddu mig ekki Gunna góð með geði fínu
Lærður gætinn lögfróður
Sit ég hér við sultarhnjask