Konráð Gíslason | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Konráð Gíslason 1808–1891

EIN LAUSAVÍSA
Konráð var fæddur á Löngumýri í Skagafirði, elsta barn Gísla Konráðssonar sagnaritara og konu hans, Efemíu Benediktsdóttur. Konráð lauk prófi frá Bessastaðaskóla vorið 1831 og sigldi til náms við Kaupmannahafnarháskóla um haustið og kom ekki aftur til Íslands. Hann hóf nám í lögfræði en sneri sér brátt að norrænum fræðum. Hann gaf út tímaritið Fjölni ásamt þeim Jónasi Hallgrímssyni, Brynjólfi Péturssyni og Tómasi Sæmundssyni en þeir voru allir skólabræður úr Bessastaðaskóla. Konráð varð styrkþegi Árnasafns 1839 og vann næstu ár að orðabókargerð og rannsóknum á íslensku máli. Árið 1848 varð hann kennari við Kaupmannahafnarháskóla og síðan prófessor við skólann 1853–1886.

Konráð Gíslason höfundur

Lausavísa
Keitu freyddi froðan rík