Stefán Ólafsson í Vallanesi | Húnaflói – kvæða- og vísnasafn
Húnaflói – kvæða- og vísnasafn

Innskráning ritstjóra

Stefán Ólafsson í Vallanesi 1619–1688

SEX LAUSAVÍSUR
Stefán var sonur séra Ólafs Einarssonar skálds í Kirkjubæ og konu hans, Kristínar Stefánsdóttur frá Odda. Eftir nám í Skálholti nam Stefán við Hafnarháskóla og vann um tíma við þýðingar fyrir Ole Worm. Stefán var prestur í Vallanesi frá 1649 til æviloka og prófastur í Múlaþingi á sínum efri dögum. Hann var talinn eitt höfuðskálda 17. aldar. Veraldlegur skáldskapur Stefáns er talsverður að vöxtum. Hann orti talsvert af lausavísum og var með fyrstu skáldum til að yrkja eiginlegar hestavísur. (Heimild: Páll Eggert Ólason: Íslenzkar æviskrár IV, 328–329).

Stefán Ólafsson í Vallanesi höfundur

Lausavísur
Hafa þá bernskir hyggnast mátt
Held ég mestu heimsins lyst
Hæfir ekki að hafna mat
Ofan drífur snjó á snjó
Þegar fjandinn fór í Björn
Þorngrund mælti, þar er hún sat