Flóvent Jónsson | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Flóvent Jónsson 1796–1883

EIN LAUSAVÍSA
Flóvent var fæddur á Ásláksstöðum í Arnarneshreppi sonur Jóns Flóventssonar hreppstjóra og Guðrúnar Benediktsdóttur konu hans.
Kona Flóvents ( f. 1827 ) var Ingibjörg Benediktsdóttir frá Ölduhrygg í Svarfðardal.
Var hún sögð stjórnsöm kona og ýtin.
Þau Flóvent áttu eina dóttur, sem dó í æsku.
Flóvent bjó á hálfum Bakka 1831-33, en þaðan í frá á Hlöðum til 1865 að hann brá búi.
Gerðist próventukarl á Syðribakka 1867 og var þar til æviloka.
Flóvent var góður búmaður og vel efnum búinn lengstaf. Hann var greindarmaður, fróðleiksfús og hagmæltur. Er kveðskapur hans til í handritum í Landsbókasafni, þar á meðal bæjavísur um bændur í Tjarnarsókn ortar þegar Flóvent bjó á Bakka. (Svarfdælingar II bls. 136)

Flóvent Jónsson höfundur

Lausavísa
Lífið gerist þungt og þreytt