| Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra
AAAA15

Heyrist mikill hófadynur


Tildrög

1. Um Björn Gunnlaugsson hestamann.
2. Björn var að leggja á nýjan hest í fyrsta sinn.
3. Nýi hesturinn slasaðist nokkrum mánuðum seinna og varð að fella hann.
    Vísnahöfundur reyndist því ekki kraftaskáld að eigin sögn.
   
1.   Heyrist mikill hófadynur
      af heljartökum Grána
      þegar Bjössi blindfullur
      brunar niður Lána.

2.  Eina færðu ósk frá mér
      úr því á bak ert sestur,
      bið ég Guð að blessist þér
      Björn minn þessi hestur.

3.  Margt er brekka mannabörn
     margt fer alla vega.
     Við skulum drekka brenni Björn
     og bera okkur karlmannlega.