| Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra
AAAA15

Ennþá stend ég beinn í baki

Flokkur:Svarvísur


Tildrög

Á Lionsfundi ( febrúar 1977 )  las formaður úr bréfi Alþjóðaforseta, Brian Stevenson, þar sem hann vottar samúð vegna fráfalls Halldórs Jóhannessonar.  Þar sem Halldór sat fundinn í fullu fjöri, gerðu menn þetta að gamanmáli og flugu kviðlingar.  En síðasta orðið átti „hinn látni“ sjálfur.....
 
Ennþá stend ég beinn í baki
þó berist náfregn yfir hauður.
Skyldi linna lófataki
loksins þegar ég er dauður.