Vor | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Vor

Fyrsta ljóðlína:Hátt brennur himinljós
Viðm.ártal:≈ 1950
Flokkur:Náttúruljóð
Hátt brennur himinljós,
hlýnar um dali.
Brosleitar björk og rós
bregðast á tali.
Leikur við ljósa drós
ljúfvindur svali.

Hoppar um hjallagil
hýr lindarseyra.
Ljúft þetta lindarspil
lætur að heyra.
Harðsvipult hamraþil
hlær út að eyra.

Leikur við skýjaskör
skarfur og kjói.
Lómur og léttur spör,
langnefja spói.
Brosa með blómavör
brekka og mói.

Ó þessi yndistíð
æsku og blóma.
Líf allt um löndin víð
leysir úr dróma.
Lof þér hver hóll og hlíð
og himnarnir óma.