Gangnaball á Höfða | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Gangnaball á Höfða

Fyrsta ljóðlína:Enn er um göngurnar gleði og fjör
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1977
Flokkur:Gamankvæði

Skýringar

Bragur ortur í tilefni af gangnaballi á Höfða 1977.
Líklega flutt á árshátíð Hrings sama ár með tilþrifum?
1.
Enn er um göngurnar gleði og fjör
þá gamna sér margir því lundin er ör.
Gangnaballsveðrið á Höfða í haust
heillaði mannskapinn takmarkalaust.
2.
Samkomustjóri er sjarmörinn Hreinn.
Sér um að þægindi skorti ei neinn,
ölföngum dreifir og útvegar laut
og athvarf í hlöðu ef jörðin er blaut.
3.
Dansað og sungið og drukkið var fast,
að drekka um göngur telst hér ekki last.
En athafnagleðin var utanhúss mest
og ennþá í hvömmunum jarðraskið sést.
4.
Ilmur í lofti og angan úr jörð
átökin gerðust því djarfleg og hörð.
Tungl óð í skýjum og skein stundum á
skrokka sem mátti þó helst ekki sjá.
5.
Haustblærinn mannfólkið heillaði þar,
hvíslað og strokið í myrkrinu var.
Stimpast og hlegið og stunið af sæld
stórlega reyndist víst grasrótin bæld.
6.
Einu varð parinu athöfnin ströng
ei gat sér lokið þó nótt væri löng.
Morguns í skímunni maður þau sá
máttvana staulast loks Höfðanum frá.
7.
Morguninn sama þá Atla bar að,
ýmislegt skýrðist á samkomustað.
Týndi upp brjóstahöld, brækur og gler
berlæruð hjúin í huganum sér.
8.
Dótið hann geymir og gamnar sér að
getur sér til um hver átt gæti það.
Sumt er af ungmey, annað af frú
eigendur hér geta vitjað þess nú.
9.
Svona var þetta og sjáið nú til
með sumrinu koma af því haldbetri skil.
Geyma sín leyndarmál lyngmór og barð
ljóst mun í júní hver árangur varð.