Ávarp | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Ávarp

Fyrsta ljóðlína:Öld reis ung úr djúpi
Viðm.ártal:≈ 1975
Tímasetning:1977

Skýringar

Í tilefni af 75 ára afmæli S.Í.S. , flutt að Hótel Sögu 15. júní 1977.
Öld reis ung úr djúpi.
Óx hinn græni meiður.
Hönd traust hendi rétti.
Húmið tók að víkja.
Birtunnar óx bjarmi.
Breytast máttu hættir.
Hlýddu hjartans boðum
hyggnir menn og djarfir.

Efla skyldi og auka
arðinn þjóðar smáa.
Hagsýni til heilla.
Hátt þeir markið settu.
Lands í breiðum byggðum
batna skyldi hagur.
Framtíð fella skorður
fyrirheitin góðu.

Vaskir gengu að verki.
Veltu Grettistökum.
Hófu sókn til sigurs.
Sjötíu og fimm ár liðu.
Afrek hafa unnið
ótal menn og konur.
Sæmdir prýða samband
samvinnumanna þjóðar.

Fyrir allra augum
ævintýrin gerast.
Fara fram úr vonum
framkvæmdirnar stóru.
Og í borg sem byggðum
bjarma leggur af dáðum.
ekki aðrir meiri
átök fremri sýndu.

Áfram árin líða.
Aldir heilsa og kveðja.
Stöðugt verður stærri
styrkur lítillar þjóðar.
Höldum hátt á lofti,
hikum ei né víkjum,
samvinnu fögrum fána
til farsældar öllum tímum.


Athugagreinar

Eiríkur Pálsson var samvinnumönnum að góðu kunnur og tók drjúgan þátt í starfsemi hreyfingarinnar um dagana. Flutti þetta ávarp á aðalfundi Sambandsins í tilefni af 75 ára afmælinu.