Fjallkóngur | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Fjallkóngur

Fyrsta ljóðlína:Hann var fæddur fram í dal
Viðm.ártal:≈ 1975
Hann var fæddur fram í dal,
við fossanið og lindahjal
þar sem í háum hamrasal
hrafnar og ernir búa.
Á öræfanna undratal
ungir sveinar trúa.

Hann var snemma hraustur sveinn
hélt á brattann frjáls og einn
vinnuiðinn hugarhreinn
heill og snar í ráðum.
Öræfunum unni ei neinn
eins í sögum skráðum.

Fjöllin tóku huga hans
heiðin með sinn gróðurkrans
erfið lífstíð útlagans
þar endaði sína göngu.
Dauðastríð hins dæmda manns
er dvaldi þar fyrir löngu.

Hin miklu tengsli manns við hest
meta kunni allra best,
eftirlæti og yndi mest
var ofsafjörið tryllta.
Galda fola er gegndu verst
hann gjörði ljúfa og stillta.

Fjallkóngur í fimmtíu ár
í ferðum öllum trúr og knár
reyndist aldrei ráðafár
ratvís þó að syrti.
Í orðum stór en aldrei flár
allra málstað virti.