Kvöldsól fer eldi | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Kvöldsól fer eldi

Fyrsta ljóðlína:Kvöldsól fer eldi
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Náttúruljóð
Kvöldsól fer eldi
um snæheima.
Gullnum feldi
vefur dal og strönd.
Á heiðskíru kveldi
geislar streyma
um loftsins veldi
skreyta höf og lönd.

Vak þú og sjá
þau ljóstjöld falla.
Lífsins þrá
er tengd við birtu og yl.
Háloftin blá
og snæborg fjalla.
Ljúft er þá
að vera til.