Mold | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Mold

Fyrsta ljóðlína:Öllum þeim sem akur plægja á vorin
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Náttúruljóð

Skýringar

Birtist í Norðurslóð 1980, en ort löngu fyrr að sögn höfundar.
Öllum þeim sem akur plægja á vorin
og unna sinni bernskusveit
gefst að launum gleðin endurborin
og göfug fyrirheit.
Þeir sjá úr jörðu vaxa veikan gróður
og vornóttin er mild og hljóð.
Það eiga allir moldina að móður
og mörgum er hún hlý og góð. 

Það er hún sem gjafir stærstar gefur
og gleður mest og best.
Alla fæðir, alltaf þroskað hefur
hinn unga sumargest.
Allir þeir sem lífsins gæða leita
leiti þeirra í akurjörð.
Því hún er sál og hjarta allra sveita
og hennar er hver þakkargjörð.

Af moldu er vaxið allt sem lífi lifir
og löndin gjörir rík og sterk.
Moldin ræður miklu lífmagni yfir
og margt er hennar kraftaverk.
Eftir vetrar ís og kuldaþætti
aftur verður jörðin græn.
Þá lúta allir moldarinna mætti
í mildri og hljóðri bæn.