Þá ungur þú varst | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Þá ungur þú varst

Fyrsta ljóðlína:Manstu er þú ungur varst að árum
Viðm.ártal:≈ 2000
Flokkur:Heilræði
Manstu er þú ungur varst að árum,
hvað oft þér fannst þín hamingja í sárum
og fljótt þú vildir verða stór.
Þú dvaldir oft á draumsins gullnu bárum
og dáðir þann sem kom og fór.

Glæddu þína gömlu æskudrauma
gefðu útþrá þinni lausa tauma
fylgdu hjartans heitu þrá.
Findu um þig leika ljóssins strauma
lyftu þér um hvolfin blá.

Gefstu ei upp þó hindri hættur margar
hugans sterki vilji öllu bjargar.
Láttu ei aðra aftra þér.
Það glatast hver sem gleði sinni fargar,
og gálaust stigu skuggans fer.

Vertu sannur trúr og heill í huga.
Hjartans þrá og vilji mun þér duga.
Réttu villtum vinarhönd.
Láttu aldrei sorg né böl þig buga
svo bjart sé um þín draumalönd. -