Á konudag | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Á konudag

Fyrsta ljóðlína:Gaman væri að geta nú
bls.24
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:1985-1988
Flokkur:Tíðavísur

Skýringar

Yrkir til konu sinnar í tilefni af konudeginum.
Gaman væri að geta nú
gert þér glaðan daginn.
Gæfan fylgi þér mín frú
og færi allt í haginn.

Góudagur genginn er
gumar verða að vinna.
Ég get ekki því er ver
glatt þig góða kvinna.

Blómvönd samt ég ber þér nú
með bestu ósk um daginn.
Óskin mín er ávalt sú
að gangi þér allt í haginn.

Við höfum lengi saman séð
svartan byl um nætur.
Einn ég stefnu ekki réð
eins og að líkum lætur.

Mín varstu ávalt hægri hönd
þegar hvarf mér dugur.
Þú gast líka reist við rönd
er reikull varð minn hugur.