Bræðrabandið | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Bræðrabandið

Fyrsta ljóðlína:Um jólin við Bræðrabandið
bls.40
Viðm.ártal:≈ 2000
Flokkur:Skáldsþankar

Skýringar

Ljósaserían sem við Árni höfðum yfir götuna um jólin var kölluð bræðraband.
Um jólin við Bræðrabandið
bundum þann góða sið
að leggja það yfir lítinn veg
úr Lundi í Reykholtið.

Það glitrandi, fagra, góða band
gladdi svo margra geð.
Okkur og börnin fyrst og fremst,
frændlið og fleiri með.

Það þurfti ei vík milli vina
vegurinn dugði hér einn.
Vinskapur okkar var alla tíð
áreiðanlegur og hreinn.

Sjá nú er Bræðrabandið
burtu horfið um sinn.
Við gluggann sit ég og syrgi,
söknuð ég mikinn finn.

En svona er lífsins saga,
ég segi það vinur minn.
Sólin hún kemur, sólin hún fer,
sama er um lífsferilinn.

Já okkur er lífið lánað
við lifum því örstutta stund,
en reynum þó ríkmannlega
að rækta hið lánaða pund.

Við pundinu skulu skila
skammlaust og þakka vel,
svo lausnarinn ljómandi segi,
ég lána en alsekki sel.

Kannski við sjáumst síðar,
við sindrandi bræðraband.
Þá kveikjum við líklega önnur ljós
og lýsum upp annað land.