Jólin 2004 | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Jólin 2004

Fyrsta ljóðlína:Kom helga nótt
Viðm.ártal:≈ 2000
Tímasetning:2004
Flokkur:Jólaljóð

Skýringar

Jólakveðja 2004
Kom helga nótt
og heilsaðu með söng
sem hjálpi þeim sem þykja myrkrin löng.

Kom ljúfa nótt
með ljósin stillt og hrein
að líkna þeim sem þjaka einhver mein.

Kom bernsku nótt
svo björt og unaðsrík
og berðu í húsið gleði sem engu er lík.

Kom jóla nótt
til jarðar enn á ný
að jafna deilu og hrekja burtu ský.

Kom friðar nótt
og feyk burt stríði og kvöl
og frelsa þá sem þola mannaböl.