Vorhugur | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Vorhugur

Fyrsta ljóðlína:Von í hug mér vakna fer
bls.Jólablað 2005 bls. 7
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:2005
Flokkur:Tíðavísur

Skýringar

Ort þegar höfundur var innan við fermingu.
Von í hug mér vakna fer
veðrið er að hlýna.
Vorið bráðum býður mér
báða arma sína.

Vorið kemur, vetur flýr
vaknar allt af dvala.
Sólargeislinn glaður, hlýr
og golan milda, en svala.

Vorið glæðir von og yl,
veitir gæfu og yndi.
Ef það væri ekki til
enginn sælu fyndi.

Vorsins geislar vekja dáð,
verma, prýða og græða.
Með birtu og ást um lög og láð
lífsins geislar flæða.

Vorið læknar vetrar sár,
vefur allt í ljóma,
þrautum eyðir, þerrar brár,
þúsund gefur hljóma.