Kveðja | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Kveðja

Fyrsta ljóðlína:Bráðum kem á betri mið
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Ellikvæði

Skýringar

Bráðum kem á betri mið
birtan er að dofna.
Ljúfi drottinn ljá mér frið
leyf þú mér að sofna.
Seinna kemur sól og vor
Þá svíf eg létt um geiminn.
Eftir endað ævispor
ég ætla að kanna heiminn.