Baunasálmurinn | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Baunasálmurinn

Fyrsta ljóðlína:Ó blessa Guð vorn baunaspón
Viðm.ártal:≈ 1925
Tímasetning:1925-26
Flokkur:Gamankvæði

Skýringar

Halldór, þá vinnumaður á Völlum, var sendur í Brautarhól til að fá matbaunir að láni, þar til nýjar birgðir kæmu í verslanir. En oft varð skortur á baunum á þessum árum og þá lánað á milli bæja.
Á leiðinni heim varð til hinn frægi Baunasálmur, stæling á rími sálmsins: „ Ó blessa Guð vort feðrafrón. “ Ýmsir eldri Svarfdælingar kunnu þennan sálm, sem ortur var 1925 eða 1926.
Ó blessa Guð vorn baunaspón
úr búinu hans Stjána.
Lát ekkert mæta magatjón.
Í miskunn lít á Sigurjón,
sem litlu af vill lána.

Hnýt ofan yfir öflug bönd
svo ekkert fari niður.
Og vernda þær með hug og hönd
og haltu beint að sultarströnd
svo mettist manna kviður.

Svo fjórðung bauna felum vér
þér, fjósamaður kæri.
Og fyrir rottum vel þær ver
svo verði þær til saðnings þér
og aðra endurnæri.