Gengið að gamla bænum, Brekkukoti | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Gengið að gamla bænum, Brekkukoti

Fyrsta ljóðlína:Manstu systir mikið var hér glatt...
bls.s. 9
Viðm.ártal:≈ 1975
Flokkur:Lífsspeki
Manstu systir mikið var hér glatt,
minningarnar streyma til mín hratt.
En bærinn sem í bernsku veitti skjól,
burtu er horfinn nú af þessum hól.

Fleira er breytt það finnum báðar tvær.
en fegurðin er kjur og jörðin grær.
Geisla hlýja gefur þessa stund
er göngum við á minninganna fund.

Já margt er það sem minning til mín ber
að mörgu var oft hérna leikið sér.
Þá litlar stúlkur lipran höfðu fót
nú löbbuðu þreyttar hérna upp í mót.

Við finnum aftur forna gleði á ný
foreldranna minnumst við í því.
Þökkum guði gengið æsku spor
gott var hér að lifa sólríkt vor.