Tobba og Týri | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Tobba og Týri

Fyrsta ljóðlína:Týri litli, Týri litli, til hvers ertu kominn
bls.5
Viðm.ártal:≈ 1900
Tímasetning:1986:1

Skýringar

Angantýr Arngrímsson, sonur Arngríms málara og Þórunnar ljósmóður í Gullbringu ólst upp á Urðum eftir lát föður síns. Hann var leikbróðir Þorbjargar Sigurhjartardóttur og er vísan samin um viðskipti þeirra einn daginn.
Týri litli, Týri litli, til hvers ertu kominn?
Til að fá þér meyjarkoss?
Burtu farðu, burtu farðu, brugðist hefur vonin
þú bara færð ei þetta hnoss.
Það fer svona stundum, það fer svona stundum
þess sem leitað er hjá sprundum.
Það fer svona stundum, það fer svona stundum.
Verður úr því versti kross