Ljóð án heitis | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Ljóð án heitis

Fyrsta ljóðlína:Leiktu þér nú litla Fríða
Viðm.ártal:≈ 1900

Skýringar

Hólmfríður vinnukona á Urðum orti um ungar dætur Sigurhjartar bónda. Fríða er Arnfríður Anna Sigurhjartardóttir (1884-1952) og Tobba er Þorbjörg Sigurhjartardóttir (1882-1969) Þessar vísur voru sungnar við sama lag og við syngjum Guttavísur
Leiktu þér nú litla Fríða
láttu hugann kætast þinn.
Meyjan unga munaðsblíða
með svo rjóða kinn.
Dansaðu við Tóbbu drósina smá
dægilega gaman verður ykkur að sjá.
Kannski að hann pabbi komi þá
kalla skal ég mömmu þína líka bráðum á.
Þó sorgin brjóstið beigi
breytast hún í gleði kann.
Skemmtinn maður er vopn á vegi
veit það hamingjan.