Svarfdælaljóð | Kvæða- og vísnasafnið Haraldur
Kvæða- og vísnasafnið Haraldur

Innskráning ritstjóra

Svarfdælaljóð

Fyrsta ljóðlína:Við eigum í norðri svo indæla sveit
Viðm.ártal:≈ 1950

Skýringar

Karlakór Dalvíkur söng þennan texta við lag e. L.M. Ipsen um 2000.
Við eigum í norðri svo indæla sveit
sem aldrei úr huga mun líða.
Þá feðranna byggð þennan blómlega reit
við biðjum að allt megi prýða.
Sem gimsteinn í hjörtun því greipt ætíð skal
hver geislabjört minning um Svarfaðardal.

Jafnt vetrar í hríðum og sumarsins sól
hver sveitungi dalinn má tigna.
Með gnæfandi Rimar og stílhreinan Stól
og streymandi ána svo lygna.
Og aldrei neinn bregðast þeim átthögum skal
er ætt sína rekur í Svarfaðardal.