SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Runurím, óreglulegur línufjöldiDæmi
Í þínu nafni uppvaknaður
er eg, Jesú, Guð og maður. Lof sé þér fyrir líf og gæði, líkamans heilsu, föt og fæði og allt það þín óþreytt mildi aumum mér tilleggja vildi. Bið eg þig, minn blíði herra, blessan þína ei lát þverra. Hegðan minni á hverjum degi haltu á sönnum dyggðavegi. Lát mig njóta ungdómsára er þú barst í manndóm klára. Gef uppfræði æsku mína andi þinn fyrir verkan sína svo í ótta og elsku þinni ávöxt góðan færa kynni. Hlýðni, tryggð og trúna bjarta tendra og nær í mínu hjarta að mér svo með aldri hrönnum aukist náð hjá Guði og mönnum. Heims og satans hrekkjasnörum hrind frá mér svo ei óvörum mig ógætinn í sér festi eður dragi í synd og lesti. Vernda mig frá voða öllum vondum dauða og slysaföllum. Englar þínir að mér gæti öngvum svo eg meiðslum mæti. Mitt verklag og miskunn þína mér lát vera unun mína. Auk mér skilning orða þinna, eru þau lampi fóta minna. Gef mér jafnan gott að læra, góðlyndum við alla vera, varfærum í velgengninni, vongóðum þó raunir finni. Ljúfi Jesú, með lífi og öndu legg eg mig í þínar höndur. Þar vil eg fús að lyktum lenda, lofaður sértu utan enda. Hallgrímur Pétursson: Í þínu nafni uppvaknaður Ljóð undir hættinum≈ 1650–1675 Hallgrímur Pétursson
|