Dverghent – skáhent – hályklað (frumframlyklað) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Dverghent – skáhent – hályklað (frumframlyklað)

Kennistrengur: 4l:-x:4,2,4,2:OaOa
Innrím: 1AA,3AA;1B,1D;3B,3D
Bragmynd:
Lýsing: Dverghent – skáhent – hályklað (frumframlyklað) er eins og dverghent óbreytt að öðru leyti en því að það hefur ekki endarím í frumlínum. Aftur á móti er aðalhendingarím í þeim langsetis þannig að önnur kveða rímar við fjórðu. Þá gera fyrstu kveður frumlína aðalhendingar þversetis.

Dæmi

Vera mundi friðland fundið
frækn sem kaus.
Gera flokkur burtu brokkar
bráðalaus.
Sveinbjörn Beinteinsson, Háttatal, bls. 26 – 141. vísa

Lausavísur undir hættinum