Þríðliðasonnetta | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Þríðliðasonnetta

Dæmi

Ég kom þar sem höfundar lásu ljóð sín í höllum
við lófaklapp fólksins og hrifningu (vonandi sanna),
á fremstu bekkjum sat úrvalslið merkustu manna
og marmaralíkneskjur þjóðskálda hátt uppi á stöllum.
En ég kveð á tungu sem kennd er til frostéls og fanna,
af fáum skilin, lítils metin af öllum;
ef stef mín fá borist um óraveg háværra hranna,
þá hverfa þau loks út í vindinn hjá nöktum fjöllum.
Svo talaði vitið. En hjarta mitt hitnaði og brann.
Á herðum mínum ég dýrmætan þunga fann.
Ég átti mér, þrátt fyrir allt, mína purpurakápu.
Í salkynnum þessum var engin sál nema ein
sem agaði mál sitt við stuðlanna þrískiptu grein
né efldist að bragstyrk við orðkynngi heiðinnar drápu.
Jón Helgason: Ég kom þar