SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Sonnetta, óstýfð, síðstuðluð, fyrsta rímblokk endurtekinDæmi
Nú sit ég einn í svölum aftan-kalda
og silfurhvítum horfi eftir linda, sem bungar fyrir blástri sunnanvinda, þar blá og dimm sig reisir fjarðar-alda. Heill sértú, blær, og vonarljósið valda, sem veit ég af að baki dökkra tinda, og heill sértú, þú hreinust allra mynda, sem hylst mér nú á bakvið jökulfalda. Þig skal ég, mey, í mínum huga geyma, og aldrei muntu mér úr minni líða, þú munarskæra, sem ég unni lengi. Um þig mig skal á dimmri nóttu dreyma, og þegar ljómar fagrahvelið fríða, þá fyrir þig ég hreyfi gígjustrengi. Benedikt Gröndal: Fjarri Ljóð undir hættinum |