Úrkast – óbreytt | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Úrkast – óbreytt

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,2,4,2:ABAB
Bragmynd:
Lýsing: Úrkast er ferhendur háttur og hefur fjórar kveður í frumlínum en aðeins tvær í síðlínum og eru síðlínur alltaf óstýfðar. Tvær gerðir eru af úrkasti eftir því hvort frumlínur eru óstýfðar eða stýfðar.
Oft eru frumlínurnar í hættinum stýfðar og þá yfirleitt forliður á undan annarri og fjórðu línu. Kallast það frumstýft. Þrátt fyrir mismunandi endarím er hefð fyrir því að afbrigðið skipti ekki háttum þannig að vísur með stýfðum og óstýfðum standa í frjálsri dreifingu í mörgum rímum. Um frumstýfingu segir Síra Helgi Sigurðsson: „En finnist ekki nema 7 atkvæði í 1. og 3. vísuorð, eins og stundum á sér stað, fylgir ávallt viðauka-atkvæði, er sezt framan við hið næsta, styttra vísuorðið.“
Óbreyttur er hátturinn víxlrímaður og án innríms.
Úrkast er nokkuð gamall háttur, líklega frá 15. öld. Ekki virðist hafa verið gerður munur úrkasts og dverghendu í eldri rímum.

Dæmi

Reyndar hefur rumið lengi
raustin slæma.
Nú skal betur stilla strengi
stefjanæma.
111. vísa Háttatals Sveinbjarnar Beinteinssonar, bls. 21

Lausavísur undir hættinum