SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Skothent
Lýsing:
Í þessum hætti eru skothendingar í öllum vísuorðum, líka í síðlínum (þar sem þær koma í stað aðalhendinga). Skothendar síðlínur koma oft fyrir í dróttkvæðum kveðskap (t.d. hjá Braga Boddasyni og Kormáki Ögmundarsyni), en sjaldan í heilli vísu, a.m.k. fyrir tíma Snorra. Í dæmi Snorra eru þó aðalhendingar í 4. vo.
Dæmi
Sær skjöldungs niðr skúrum,
– sköpt – darraðar – lyptask –, hrindr gunnfana grundar glygg of fræknum tyggja; geisa vé fyr vísa, veðr stöng at hlym Gungnis, styrk eru mót und merkum malms of ítran hilmi. Snorri Sturluson: Háttatal Snorra-Eddu, 52. vísa |