Afhent – frumtvíframsneitt - síðframsneitt (missneitt) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Afhent – frumtvíframsneitt - síðframsneitt (missneitt)

Kennistrengur: 2l:[o]-x[x]:6,4:AA
Innrím: 1A,1B;1C,1D;2A,2B
Bragmynd:
Lýsing: Afhent – frumtvíframsneitt – síðframsneitt (missneitt) er eins og afhent óbreytt, auk þess sem fyrsta og önnur kveða frumlínu gera sniðhendingar sín á milli langsetis og einnig þriðja og fjórða kveða frumlínu. Þá gera og fyrsta og önnur kveða síðlínu sniðhendingar sín á milli langsetis.
Undir þessum hætti er mestur hluti fjórðu rímu af Olgeiri danska eftir Guðmund Bergþórsson (um 1657–1705). Sumar vísur í henni eru þó meira sneiddar.

Dæmi

Fróðleiks prýði frama næmis fékk eg eigi
þar svo fyrir metast megi.
Olgeirs rímur danska IV:7

Lausavísur undir hættinum