Afhent – frumhent (frumstiklað – valhent) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Afhent – frumhent (frumstiklað – valhent)

Kennistrengur: 2l:[o]-x[x]:6,4:AA
Innrím: 1B,1D
Bragmynd:
Lýsing: Afhent - frumhent (frumstiklað, valhent) er eins og afhent óbreytt en auk þess gera önnur og fjórða kveða frumlínu (fyrri braglínu) aðalhendingar langsetis sín á milli.
Undir þessum hætti er kveðin áttunda ríma af Amíkus og Amilíus en þær rímur gætu verið frá því um miðja 16. öld.

Dæmi

Hrundin fríða horfði kvíðin heima löngum,
sagnafá í sínum öngum.
Sveinbjörn Beinteinsson: Háttatal, bls. 74 (427. vísa)

Lausavísur undir hættinum