Stuðlafall – baksneitt | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Stuðlafall – baksneitt

Kennistrengur: 3l:[o]-x[x]:5,4,4:AAA
Innrím: 1E,2D,3D;2D,3D
Bragmynd:
Lýsing: Stuðlafall - baksneitt er eins og stuðlafall – frárímað (óbreytt) nema hvað endarímsliður frumlínu (fyrstu braglínu) gerir sniðhendingar við endarímsliði síðlína (annarrar og þriðju braglínu) en þær gera aftur á móti aðlahendingar sín á milli.

Dæmi

Hver mun leysa helgar fósturslóðir,
eins og skyldan ákaft bauð,
undan slíkri heljarnauð.
371. vísa Háttatals Sveinbjarnar Beinteinssonar, bls. 66

Lausavísur undir hættinum