Samhent – oddhent (frumstiklað) | BRAGI
Bragi, óðfræðivefur

Söfn

Íslenska
Íslenska

Persónuvernd:

Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn.

Innskráning ritstjóra

Samhent – oddhent (frumstiklað)

Kennistrengur: 4l:[o]-x[x]:4,4,4,4:aaaa
Innrím: 1B,1D,2D,3B,3D,4D
Bragmynd:
Lýsing: Samhent – oddhent (frumstiklað) er eins og samhent óbreytt nema hvað í þessum hætti gera önnur kveða frumlína og fjórða kveða (endarímsliður) aðalhendingar langsetis.
Þessi háttur kemur þegar fyrir í nokkuð gömlum rímum, til dæmis er tíunda og síðasta ríma í Bósarímum ort undir honum en þær rímur eru líklega ortar um 1500. Þá eru og kveðnar undir honum fjórtánda ríma í Vilmundar rímum viðutan hinum eldri, sem líklega hafa verið ortar snemma á 16. öld, og tuttugasta ríma í rímum af Vilmundi viðutan eftir Hall Magnússon (d. 1601).

Dæmi

Leiddi í sal með listar tal
ljúfan þennan sæmdar hal;
hróðrar val að herma skal
hvað þar verður meira hjal.
Vilmundar rímur viðutan eldri XIV:34

Lausavísur undir hættinum