SöfnÍslenskaÍslenskaPersónuvernd:
Vefurinn safnar engum upplýsingum um notendur sína. Leturgerðir eru frá Google sem skráir notkun á þeim.
Vefkökur eru aðeins notaðar til þess að halda utan um innskráningar þeirra sem annast efnisstjórn. |
Gagaraljóð – Aukið Kolbeinslag – víxlað í öllum vísuorðum (alvíxlað)-
Kennistrengur:
4l:[o]-x[x]:4,4,4,4:abab
Innrím:
1B,1D;3B,3D;2B,2D,4B,4D;1A,1C;2A,2C;3A,3C;4A,4C
Bragmynd:
Lýsing:
Gagaraljóð – Kolbeinslag – víxlað í öllum vísuorðum (alvíxlað) er eins og Kolbeinslag – óbreytt nema hvað fyrsta og þriðja kveða hverrar braglínu ríma auk þesds langsetis.
Kolbeinn Grímsson Jöklaraskáld (um 1600 – um 1683) orti síðustu vísu í þriðju rímu Sveins Múkssonar undir þessum hætti en sú ríma er annars undir Kolbeinslagi óbreyttu. Sveins rímur Múkssonar eru líklega ortar um miðja 17. öld. Dæmi
Þreyttan slag og breyttan brag
batt eg mér, það satt eg sver. Kliðað stag með liðað lag leiðast fer að eyðast hér. Kolbeinn Grímsson Jöklaraskáld: Sveins rímur Múkssonar III:75 |