Sigurður Helgason á Jörfa Kolbeinsstaðahreppi | Kvæðasafn Borgfirðinga
Kvæðasafn Borgfirðinga

Innskráning ritstjóra

Sigurður Helgason á Jörfa Kolbeinsstaðahreppi 1787–1870

FJÓRTÁN LAUSAVÍSUR
Sigurður var fæddur í Vogi í Hraunhreppi, sonur Helga Helgasonar bónda þar og síðari konu hans, Elínar Egilsdóttur. Hann var fyrst bóndi á Ísleifsstöðum í Hraunhreppi 1814–1816, þá í Krossholti í Kolbeinsstaðahreppi 1816–1826 og á Jörfa í sömu sveit 1826–1851. Hann bjó síðan á Fitjum í Skorradal 1851–1858. Hann brá þá búi og flutti til Helga sonar síns á Jörfa og síðan með honum að Setbergi í Eyrarsveit þegar Helgi gerðist prestur þar 1866 og dó þar hjá honum fjórum árum síðar. Sigurður var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún   MEIRA ↲

Sigurður Helgason á Jörfa Kolbeinsstaðahreppi höfundur

Lausavísur
Að setja í stelling sjónargler
Daglegt brauð er dauflegt hér
Fallega Guðný fötin sker
Fátt til verka Fitjum á
Fitjar eru falleg jörð
Gleði valda gómatól
Háafell er hlýlegt kot
Háafelli Horni Vatns og Sarpi
Hörð því valda hretviðrin
Illan hef ég aðbúnað
Jökulföll á bakka bar
Prestur Björn á bænum Hít
Stal hér mötu stór sem jötunn
Þó ég gengi margs á mis