| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Þú hefur fyrstur frelsi svipt hann


Tildrög

Páll kom fola í tamningu. Að nokkrum tíma liðnum falaði tamningamaðurinn folann til kaups. 
Þú hefur fyrstur frelsi svipt hann
og fangbrögð við hann nokkur þegið.
Þú hefur bæði kembt og klippt hann,
kornið skammtað, valið heyið.
Og fyrst þú ætlar taumi að tyft'ann
tel ég rétt þú eignist greyið.
Njóttu hans vel og gefi giftan
að gæðing hafirðu í bú þitt dregið.