| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Opnast fagurt sjónarsvið

Heimild:Samtíðin


Um heimild

6.tbl. 1957


Tildrög

Ort á göngu frá Tungufljótsbrú að Borgarholti, vorið eftir að hann hætti búskap þar.
Opnast fagurt sjónarsvið,
seiða gömul kynni.
Borgarholtin blasa við,
blána í fjarlægðinni.

Sýnist landið nú sem nýtt,
nært af sól og vori.
Hér er bæði bjart og hlýtt,
blóm í hverju spori.

Ásar, mýrar, móar, sund,
margt húsdýra sést þar.
Auðga hýran endurfund,
ærnar, kýr og hestar.