| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Þótt kirkjan sé vegleg og kosinn hinn lærðasti prestur

Heimild:Fjölrit
Þótt kirkjan sé vegleg og kosinn hinn lærðasti prestur,
ég kem inn um dyrnar og fer þaðan aftur sem gestur,
því sitthvað er orðið og útþynntur stólræðulestur.
Í einrúmi er Kristur mér næstur og viðræðubestur.