| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Vetur grái er farinn frá

Bls.452
Flokkur:Samstæður


Um heimild

Vorvísur
Vetur grái er farinn frá
fjöllin háu klæðum breyta.
Grösin smáu grundum á
gleði þrá og yndi veita.

Vorið blítt um bala og hól
blænum ýtti með í dansinn.
Vorið hlýtt og sumarsól
saman hnýttu blómakransinn.