| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12


Um heimild

Formannsvísur


Tildrög

Sigurður Ólafsson vinnumaður í Kirkjulandshjáleigu í Austur-Landeyjum var formaður á Fortúnu. Hann var fæddur og uppalinn í Hrútafellskoti undir Eyjafjöllum.
Fortúnu nú fleytir glaður
fram á sæ þar afla er von
hugdjarfur og hraustur maður
hann Sigurður Ólafsson.
 
Hrútafells er hann frá koti,
heppnari enginn fer á sæ
Raun verður ei að ráða þroti
rekka gleður sína æ.