| Kvæða- og vísnasafn Árnesinga
Kvæða- og vísnasafn Árnesinga

Innskráning ritstjóra
AAAA12

Fram úr réttum fólk í spretti


Um heimild

Sögn Böðvars Guðmundssonar Efribrú.


Tildrög

Ort um bræðurna á Efribrú í Grímsnesi, Guðmund og Tómas Guðmundssyni.
Fram úr réttum fólk í spretti
fer í léttum reiðarglaum.
Skjóni á undan öllum skundar
en Guðmundur stýrir taum.
 
Hans við síðu hlýðinn, fríður
hópinn prýðir Tómas snar.
Rennur fljótt með ríkum þrótti
á rauðblesóttum gjarðamar.